Tjaldborg ehf. Dynskálum 30, 850 Hella. s: 4875928 gsm: 8934046  email: tjaldborg(hjá)simnet.is

Fellihýsaleiga

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  
Kynning á fellihýsum Tjaldborgar og helstu reglum um leigu.
Fellihýsin eru af gerðinni Viking og henta vel fyrir 5 manna fjölskyldur.
Fellihýsið er leigt út með fylgihlutum svo sem gaseldavél, gaskút, borði og 3 föstum bekkjum inni, sólarrafhlöðu og skyggni.
Óheimilt er að aka með fellihýsið um vegleysur, óbrúaðar ár, vegtroðninga, götuslóða, snjóskafla, ís eða aðrar vegleysur. Ökutæki þarf að hafa viðurkenndan tengibúnað fyrir fellihýsið.
Reykingar eru með öllu bannaðar í fellihýsinu. Ekki er leyfilegt að vera með gæludýr.
Leiðbeiningar um notkun eru í fellihýsinu og er leigutaka skylt að fara eftir þeim.
Leigutími er frá fimmtudegi til miðvikudags og skila þarf fellihýsinu hreinu milli kl 10 og 16, og er það þá yfirfarið af leigusala að viðstöddum leigutaka. Leigjandi skal ganga vel um fellihýsið, skila því hreinu bæði utan og innan  og gæta þess að hver hlutur sé á sínum stað og ekkert vanti.
Leigutaki ber fulla ábyrgð á fellihýsinu meðan á leigutíma stendur og skuldbindur hann sig til að bæta það tjón sem verða kann á leigutímanum. Fellihýsið er kaskótryggt hjá Tryggingamiðstöðinni og tryggir það líkt og kaskótrygging bifreiðar skemmdir á henni sjálfri. Sjálfsábyrgð er kr 76,500- sem leigutaki greiðir ef um stórtjón er að ræða. Verði hins vegar minniháttar tjón má leigusali gjaldfæra þann kostnað á kortanúmer leigutaka.
  


Sambærilegt fellihýsi
  

Skyggni fylgir með
   


Grunnmynd